
Jáh,
ég veit að þið trúið þessu varla,
eruð bara Is This A Dream Or Just A Fantasy ?! eins og segir í
laginu góða
en nei
þetta er engin lygi eða draumur eða tálsýn...
það er komið nýtt blogg.
TADDADADADADADADAAAAAAAAAAAAA!!!!


Váh eruði ekki ánægð ?!?
loksins búið að rífa síðuna upp, kominn nýr banner, hellingur af
nýju dóti (meðal annars öll gömlu bloggin sem hægt að myrða mikinn
tímann með), nýr litur á síðuna og síðast en ekki síst, nýtt blogg
bara þvílíkt comeback hér á ferð krakkar !
og ég get afsakað þetta bloggleysi með því að segja að síðan var
eiginlega í sumarfríi.
ég veit ég veit, þetta er búið að vera hreint hræðilega
ömurlegur tími þegar ekkert blogg er búið að koma í næstum 3 mánuði
í síðunni góðu, b.c.is/zho,
jáh, þvílík hörmung, ég er viss um að ófáir hafi byrjað að skera
sig, borða óhóflegt magn af majonesi og skorpunni af kfc kjúkling,
sumir makað sig í brúnni sósu og hlaupið naktir um götur bæjarins
en aðrir bara tekið því rólega og lamið hausnum á sér í
tölvuskjáinn í móðursýkiskasti eftir að hafa farið á síðuna í
fimmþúsundasta skiptið í vikunni og ekkert nýtt blogg komið.
svo frétti ég af 3 sjálfsmorðum og 11 limlestingum.
váh, ég get ekki bloggað sona snemma, bara váh, þetta gengur
bara ekki, klukkan er réttsvo 4 og bara þetta er ömurlegt, ætla
frekar að halda áfram í kvöld, þegar það er komið betra blogg
enviorment 

...
jæja, núna er klukkan orðin sjö,
jáh,
um daginn (12.Júní
fokk er langt síðan ég bloggaði
) þá fór
ég á tónleika í Egilshöll með hinum væna manni, Roger Waters,
fyrrum söngvari og leiðtogi sveitaballa og skemmtihljómsveitinni
''Pink Floyd'' sem mörgum er kunnug.

Margt var um manninn á þessari samkomu til heiðurs og njóts
Rogers nokkurs Waters, en mest var þó af miðaldra fólki, þar sem að
tónlist Waters var upp á sitt besta og vinsælust fyrir 20-30
árum.

Við mættum nokkuð fyrir áætlaðan sýningartíma svo við hefðum
möguleika á að bera goðið augum nokkrum metrum nær en ella. Við
fundum ágætis áningarstað og létum tímann líða. Eftir dágóða stund
kom stjarnan og fylgdarlið hans á mikilfenglegt sviðið og goðið
sjálft taldi inní fyrsta lagið ''In The Flesh?'', og engin venjuleg
talning get ég sagt ykkur, ónei, hann taldi inní á íslenskunni
okkar ! Mikil gleði braust út við þessa óvenjulegu og frumlegu
heyrn. Mikil ljósadýrð kom fram við spilunina á laginu og
sprengingar miklar, eldtungur spúðust út úr gólfinu sem og loftinu
og ljósadýrð geislaði um allt.

Þessi lög ákvað vinur okkar, hann Roger Waters, að spila fyrir
okkur þetta kvöld:
In The Flesh, Mother, Set The Controls For the Heart Of The Sun,
Shine On You Crazy Diamond, Have A Cigar, Wish You Were Here,
Southampton Dock, The Fletcher Memorial Home, Perfect Sense parts 1
and 2, Leaving Beirut, Sheep.
Seinni helmingur: Dark Side of the Moon platan öll
Uppklapp: The Happiest Days Of Our Lives, Another Brick In The
Wall (Pt 2), Vera, Bring the Boys back Home, Comfortably Numb.
Lögin liðu í gegn, með hverri geðshræringunni á eftir annari
(góðkynja geðshræringu
) og þvílík gæsahúðin sem fór um líkama
minn er sveitin lét hið tímalausa og stórfenglega lag ''The Great
Gig In The Sky'', ég stóð á tám og var alveg í trans með þvílíkan
fiðring þegar hápunktur lagsins kom. Vafalaust mitt uppáhalds Pink
Floyd lag.
Mikilfenglegir tónleikar þetta voru og ég arkaði heim helvíti
(svo ég sé dollítið flippaður í málfari, svona eins og unglingarnir
segja nú til dags) ánægður með vellíðunnar og gleðihroll um mig
allan.

Jáh, þetta var ansi magnað
góð saga sölvi
viltu köku ?
gott framlag
já, hvað nú, já, meira um mínar uppákomur í bloggleysinu,
fyrir einhverjum dögum þá gerði ég alveg magnaðan gjörning,
fór í 4 daga fjallgöngu einhverstaðar útí rassagati á
suðurlandi, og ekki nóg með það, ÉG FÓR MEÐ ÖLLUM KENNURUNUM Í FSU
(Fjölbrautarskóli Suðurlands) !!!


aðeins svalari
(ok sona til þess að fyrirbyggja allann misskilning um að ég sé
einhver meitsjör njörður að vera eikkað að tsjilla með kennurum úr
FSu í fjallgöngu, þá er ástæðan fyrir essu að mamma og pabba eru
bæði kennarar í FSu og þúst ég og bróðir minn áttum að fara með og
sona
)
(etta er sko ég,
svalastuuurr í fjallgönguu, þúst ég fylgist með því nýjasta í
fjallgöngutískunni!)
já, meira um það, þetta var nú ekki alveg útí rassgati, etta
heitir eikkað SKÆLINGAAARR og SVEINSTINDUUURRRR, þúst tótallí ðí
mein hanging pleis off oll ðe kúl pípol, þúst Pikachu og George
Micheal voru bara á tsjillinu þanna á Sveinstind og þúst ég bara
omg, þúst mí ógó öfund !
En já, aðeins fyndnara, allir kennararnir (sem eru sona, kanski
pííínnu drykkfeldir) voru alltaf öll kvöldin, sona að ''hita upp''
fyrir stóra fylleríið síðasta kvöldið, með því að fá sér í staup og
sona á fullu öll kvöldin, og so síðasta kvöldið var bara meitsjör
fyllerí !
þúst ÉG ER AÐ TALA UM KENNARANA Í FSU SEM AÐ ERU AÐ
FARA KENNA MÉR EFTIR ÁR AÐ SYNGJA OG DREKKA Á FULLU !
etta
var samt miklu minna heldur en í fyrra.
En jáh, þa var alveg ágætlega skemmtilegt í essari ferð
jájá
heyrðu, guuuð minn góður, ég er ekki búinn að blogga síðan
Hrafnkels ammali !!
gvvöööð minn good,
en jáh, myndirnar eru samt löngu komnar
mmmmmm, var að fá mér kók og kleinu og kit-kat, schnilld
en já, ammli hraffnkellsss,
jáh, váá´hh var etta skemmtilegur daguuuurrr!! þúst etta var á
ammlisdegi hraffkells og ég og Gizz vorum bara geggð fúlir að hann
ætlaði ekki að halda uppá ammli sitt þannig að við fórum með
kristni heim til mín og bökuðum þúst SPLENDID köku sem að var bara
þúst ÐÍ flottasta kaka and ÐÍ móst gleði kaka inn ðe hól vörld! váh
kað hún var flooottt !! þúst þrigggja hæða hjartalaga bleikglassúrs
húðuð og þvííílíííkktt flott skreitt með nammi og kertum !
Þúst sjáið bara !!---->

Aðeins Meiri
GLEEÐÐII!!
Og þúst á meðan ég og Gizz bökuðum þá skrapaði Krizz ógó flotta
tígrisdýramynd handa Hraffkelli. Þúst þið verðið að skoða myndirnar
(reyndar helvíti ljótar af mér
) þí þúst etta vara ógó fönn !
So fórum við með herlegheitin (með stjörnuljós í kökunni og með
blómakrans í hönd) upp veginn hjá Hrafnkelli og hann var bara
kreeeiiissíí glaðuuurr !
so vorum við bara hjá Hraffkelli eftir þa og bara kreisí gaman,
þúst lúkk att ðe piktjórs and jú vill sí !
ok
frábært
nohh, etta er nú bara komið helvíti fínt blogg !
ætla samt að skrifa aðeins meir so þi verðið ánægð
jáh
í gær fór ég til Krizz og þar voru Gizz og Gunnzz (Gissur, ekki
fara í fílu ef þér finnst asnalegt að kalla þá Krizz og Gizz og
Gunzz) og ég og Gizz bara strax í myndafliiiippppp !!! VÚHÚÚÚ
KREIISÍÍÍÍÍ BÓÓJJSSS !!!FLIIIPP!!FLIIPPP!! KREIISSÍÍ!! en jáh,
myndaflippmyndirnar koma örugglega bráðlega þegar kristinn sendir
mér þær eða eikkað.
hmmmm, hvað hefur fleira uppá mína daga drifið ?
æjáá, oooohhh
Syd Barret, stofnandi og fyrverandi söngvari og
gítarleikari Pink Floyd var að deyja um daginn
reyndar doldið
vel geðveikur af ofneyslu af lsd og öðru hnossgæti en samt
snillingur.
Syd Barret er annar frá vinstri (hoppar hæst), etta er
sko Pink Floyd fyrir löngu. Aðeins svalari gaurar !
heyjá, váh kreísí !
einhverntíma um daginn þá fór ég á
tónleika með Sign í Tryggvaskála á Selfossi ! AHAHAHA aðeins
fyndnara ! geggð fræg hljómsveit (eða svona doldið fræg
) í pínu
sal í tryggvaskála með engu sviði og örfáir að horfa á !
en
þetta var samt geggð næs, marrh var bara alveg við
hljómsveitina
so eftir tónleikana voru þeir bara á tsjillinu
að spjalla við alla og gefa eiginhandaráritanir (ég fékk
eina
) og þúst ég spurði söngvarann (úúhhh, hvað heitir hann
aftur, æjá, ZOLBERG!!ÚÚÚHHH GÆSAHÚÚÐÐ!!) hvort hann hlustaði á
Sigur Rós og þúst hann bara, jájá, og ég sé að þú gerir það líka og
benti á zho bolinn minn með sigur rósar myndinni
kreeiissíí
so var ég að fá loksins betri vinnu en unglingavinnan,
aðstoðarmaður bakara í Vilberg !
bara næs, fæ meira borgað en
í unglingavinnunni og fæ allt þa bakkelsi (kökur) sem ég vill
so var Kristinn að koma frá Spáni og gaf mér geeeeeggjjaaðaann
disk, þúst ví ar tolkíng abát El Disco De Reggaeton Beibííí
!!
bara kúl diskur, INNIHELDUR KLASSÍSKU POPP SLAGARANA
PAPITO VEN A MÍ MEÐ HINNI SEIÐANDI LORNA !!(rjáf!) KOMDU ÞÉR Í
STUÐIÐ MEÐ STUÐ OG PARTÝLAGI SUMARSINS ''PAPI CHULO...TE TRAIGO EL
MMMM'' MEÐ SEGUNDA BASE !! ERTU Í FÍLU ?!? EKKI MIKIÐ LENGUR EFTIR
HLUSTUN Á ''YEAH!!MARACUYEAH'' MEÐ DJ KUN !! OG AÐ ÓGLEYMDUM
DISKÓPOPPSLAGARANUM ''ME VOY PA'L PARTY'' MEÐ ÁNGEL LOPEZ SEM
ENGINN GETUR STAÐIST !!
ÞÚ KEMST SKO Í DANS STUÐIÐ MEÐ HINUM
FRÁBÆRA SAFNDISK SUMARSINS: EL DISCO DE REGGAETON !!!
hahaha! (ég feikaði ekki neitt af nöfnunum!
)
váh kreisí !
en sjatt, ég þarf að vakna klukkan 6 á morgun í vinnu
er
þetta ekki bara komið fínt í bili ?
ohh sjitt, á eftir að setja helling af drasli inná síðuna

heyrru, þetta er bara komið nóg
vonandi er ég ekki að gleyma neinu
plz skoðið eikkað af nýja dótinu sem ég eyddi miklum svefntíma í

og gestabók og skoðanir bíta ekki 
-Sölvi